Innihald (um 20 stk)
-
130gr hafrahveiti (setjið heila hafra í matvinnsluvél eða blandara)
-
160gr hafrar
-
1 tsk matarsódi
-
3 skeiðar Plantforce vanilla próteinduft (60gr)
-
1 tsk sjávarsalt
-
1 dl möndlusmjör
-
6 döðlur
-
1 dl maple síróp
-
3 msk kókosolía
-
1 tsk vanilla extract
-
6 msk (90 ml) rísmjólk
-
1 plata 70% súkkulaði (skera smátt)
Aðferð
- Kveikið á ofninum í 175°C, undir og yfir hita.
- Setjið þurrefnin í stóra skál.
- Blandið saman möndlusmjöri, maple sírópi, vanillu extracti, kókosolíu, döðlum og rísmjólk í blandara eða matvinnsluvél. Bætið því síðan út í stóru skálina með þurrefnunum ásamt súkkulaðibitunum og blandið saman með sleif.
- Mótið hringlaga kökur (sirka 20 stk.), setjið á bökunarpappír og inn í ofn í 18-22 mínútur á 175°C.
Uppskrift frá @likamiogheilsa.is